Myndi aldrei kjósa VG en finnst ógeðslegt að sjá hvernig fólk, á vinstri vængnum, talar um Katrínu J eins og hún sé bara einhver lítil stelpa sem er að láta mennina plata sig. Hún er fullorðin kona sem er formaður flokks og pólitíkus til margra ára!
Kæru vinir.
Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Ég er ykkur ævinlega þakklát fyrir stuðninginn og peppið síðustu fjögur árin 🙏❤️
Svo gaman að sjá hvað margir á insta hjá mér eru á ferðalagi. Held flest hefðu gott af því að stíga útúr covid sýrunni hérna og sjá hvað allt er afslappaðra víðast í Evrópu 🙏 fór tvisvar í sumarfríinu og eina vonda er að koma aftur heim í endalaus test og stress.
Góðan daginn til allra nema þeirra sem hægja á sér til að fara yfir hraðahindrun þar sem börn bíða eftir að komast yfir en stoppa ekki. Hvað er að ykkur, svona án djóks.
Fulltrúi þeirra sem fékk bara average einkunnir í háskóla og hefði aldrei deilt þeim á samfélagsmiðlum og er bara búin að eiga mjög skemmtilegan og áhugaverðan career hingað til þrátt fyrir það 🙋🏼♀️
Hann: af hverju eru Frakkar svona góðir í fótbolta?🥰
Ég: af því þeir eru duglegir að æfa sig, borða hollan mat, fara snemma að sofa og og hlýða alltaf mömmu sinni
Hann: ræður mamma þeirra þá öllu?☺️
Ég: já 🤷🏼♀️
Ég er búin að láta bólusetja mig og börnin mín fyrir öllum fjandanum og aldrei nokkurn tímann hef ég pæld í framleiðanda bóluefnis eða hversu mikla vörn það veitir.
Ps. Ég fékk Janssen og fékk ekki neinar aukaverkanir.
Tveir 9 ára mætast á röltinu á fótboltamóti
Drengur úr KR: hey ég hef spilað við þig áður og þú ert rosalega góður
Drengur úr Þrótti: takk, þú ert líka mjög góður
Svo héldu þeir áfram sína leið, mutual respect.
Mér finnst eitthvað svo fyndið við að vera með 5 ára háskólanám á bakinu í tölvunarfræðum og 13 ára starfsreynslu í forritun en vera ekki að vera með admin réttindi á vinnutölvunni minni.
Ég get ekki uppfært neitt án þess að fá aðstoð frá starfsmanni borgarinnar.
Það ef eins og fólkinu sem líður best í takmörkunum sé ekki ljóst því verði fullkomlega frjálst að vera áfram með grímu og ekki lengur á veitingastað en til 22 þegar verður aflétt.
Er einhver að fara að kaupa nótt á Hótel Borg því áhrifavaldar fá fría nótt þar?
Hefur einhver nokkurn tímann gist á þessu Versace hóteli í Kef sem er ekki áhrifavaldur?
Áhrifavaldar hafa svo þveröfug áhrif á mig.
Veit í raun ekkert asnalega en fólkið sem heldur því fram að eina málið sem
@aslaugarna
tali fyrir sé netverslun með áfengi. Það frumvarp er löngu tilbúið (og tímabært) og farið í samráð og hún er búin að gera rugl mikið á þessum stutta tíma sem hún hefur verið ráðherra 💙
Svo þakklát fyrir ríkisstjórn sem panikkar ekki, hlustar á sérfræðingana og tekur yfirvegaðar ákvarðanir 🙏 Myndi alls ekki treysta öllum flokkunum á þingi til að taka svona ábyrga afstöðu.
Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur var samþykkt einróma í samgöngu- og skipulagsráði í dag. Ég er ótrúlega stolt af henni. Reykjavík ætlar að verða hjólaborg á heimsmælikvarða og áætlunin er liður í því. Hlakka til að heyra hvað ykkur finnst 🤍🚲
Margir sem vilja losna bæ grímur í afléttingum. Grímur valda því ekki að fólk missir vinnuna. Fjöldatakamarkanir og 2m regla aftur á móti valda því ásamt takmörkum á opnunartíma. Ég skal alveg vera með grímu áfram ef fleiri mega koma saman og hinir ýmsu rekstraraðilar lifa af.
Það er fyrst og fremst þakklæti sem kemur upp í hugann í dag. Ég er þakklát kjósendum fyrir að treysta mér til að starfa fyrir borgina. Ég ætla að starfa af heilindum og fylgja minni sannfæringu. Það verður gaman að takst á við ný og spennandi verkefni og ég er full tilhlökkunar.
Fyrir 14 vikum fannst mér ég í ömurlegu formi og langaði í eitthvað mission og ákvað að stefna á hálft vor maraþon. Fór í þjálfun hjá Arnari Péturs og missti bara úr eina æfingu þrátt fyrir slæma færð og covid. Kláraði þetta í góðum fíling á 1:53:17 í dag 💃🏼
Dream come true
Sonur minn kallaði á mig þegar hann var að fara að sofa og bað mig að leggjast hjá sér. Gerist æ sjaldnar.
Svo hvíslaði hann: mamma
Ég: 🥹 já
Hann: hver helduru að vinni Premier League?
Ég er um það bil hamingjusamasta kona í heimi akkúrat núna, tillagan um að auka framboð á forritunarnámi og -kennslu í skóla- og frístundastarfi borgarinnar var samþykkt samhljóða eftir breytingatillögu meirihlutans.
#borgarstj
órn
Fólkið vissi betur en að kjósa þau sem reyndu að sannfæra öll um að hér væri allt ömurlegt. Kjósendur finna á eigin skinni að svo er ekki 🙏
Vonandi gengur hratt og vel að mynda ríkisstjórn og til hamingju allir nýir þingmenn 💙
Ég er svo triggered yfir að það sé í lagi að loka fólk inni undir eftirliti ríkisins og að það sé bara stór hópur fólks að garga að það eigi að loka landamærunum hérna, af því það er heimsfaraldur. Held það verði stórkostlega erfitt að vinda ofan af þessari stemningu.
„mamma mín var að vinna í skemmtilegustu vinnu í heimi og fór svo að vinna við eitthvað drasl. Ég var alveg svakalega leiður þegar hún fór að vinna í ráðhúsinu, það er bara ekkert kex þar og ekkert dót! Enginn star wars spilakassi og ekkert trommusett“ - sonur minn við vini sína
Fyrir mér á það sama við um almenningssamgöngur og leikskóla, ég vil góða þjónustu frekar en ókeypis þjónustu.
Kerfið á svo að grípa þau sem standa höllum fæti.
Atli um daginn við vin sinn: þróttur er að keppa á morgun, ætlaru á leikinn?
Vinurinn: ég skal spyrja pabba minn hvort hann vill fara
Atli: eða mömmu þína 😇
Ég: ❤️👩👦😭
3 ára dóttir mín var eitthvað brjáluð út í mig og rak aðra höndina uppí mig og sagði "Nú verðuru veik😠🤷🏼♀️"
Er enn gapandi yfir hvað þetta var útpælt múv.
Tilraunaverkefni með að leyfa reykvískum unglingum að mæta seinna í skólann er svo frábær hugmynd! Spennt að sjá hvort það skilar sér ekki í betri líðan og heilsu.
Kynnti drög að hjólreiðaáætlun í skipulags- og samgönguráði áðan og fékk svo góð viðbrögð frá fulltrúum allra flokka sem voru viðstaddir (allir flokkar í borgarstjórn nema Vinstri græn). Ekki slæmt pepp á sólríkum degi!
Get ekki beðið eftir að kynna þetta fyrir almenningi!
Þakka
@SigurborgOsk
og
@KristinSoffia
það traust að leyfa mér að leiða stýrihóp um nýju hjólreiðaáætlunina. Hlakka til vinnunnar framundan með frábærum hópi. Gott fólk getur gert góða hluti saman þvert á flokka.
Viðtalið við
@Jon_Gnarr
í Spursmálum var svo gott að ég er enn að hugsa um það. Svaraði öllu, baðst ekki afsökunar á gömlu gríni (sem hefði verið einfaldast) og var svo einlægur, heiðarlegur og hjartahlýr.
Áhugaverðasta sem ég hef séð í þessari baráttu.
Ein stelpa fór í tölvunarfræði útaf mér og önnur í starfsnám hjá CCP. Þetta lærði ég á frábærum viðburði hjá Ada. Ótrúlega auðmjúk og stolt af því. Fyrirmyndir skipta máli. 😭🙏🏼❤️
#stelpurforrita
Dóttir mín var að öskurgrenja því bróðir hennar sagði að ég myndi flytja með honum til Parísar þegar hann fer að spila fyrir PSG og hún mætti ekki koma með. Talandi um ótímabært grenj.
Ég og Jonah Hill fórum á klósettið á sama tíma áðan og þegar hann yfirgaf veitingastaðinn sagði hann byyyee take care og vinkaði mér og brosti og ég sagði bye you too og núna erum við besties 👫
Fólkið sem stýrir Reykjavík er algjörlega hætt að pæla í að þetta eru annarra manna peningar sem þau eru að sýsla með. Fæ þessa tilfinningu í hverri viku.
Við
@KristinSoffia
og
@SigurborgOsk
sitjum núna á fjarfundi með
@mobycon
sem verða erlendir ráðgjafar okkar við Hjólreiðaáætlun 2021-2025. Get eiginlega ekki útskýrt hversu spenntar við erum að taka hjólreiðar á næsta level í Reykjavík.
tillaga um útfærslu á fleiri göngugötum og göngugötum allt árið var rétt í þessu samþykkt af fulltrúum sjálfstæðisflokks, sósíalista, viðreisnar, VG, pírata og samfylkingar 💃🚶♂️🚶♀️🕺
Fólk: lýðræði er mikilvægt, kynnið ykkur málin, nýtið kosningaréttinn
Líka fólk: lol það hringdi í mig sjálfboðaliði frá stjórnmálaflokk og ég lét nú viðkomandi þannig heyraða 😂 gefið mér like takk