-"Fokkaður þér aumingi" eftir rangt rautt spjald 1+2 leikir
- Rað rasisti dæmdur í annað sinn fyrir rasisma en kynþáttaníðir leikmann 5 leikir
Til hamingju með að gera lítið úr KSÍ og baráttunni gegn rasisma aganefnd
Það kom maður frá Noregi í Víkina áðan til að kaupa Berserkja varning. Sagðist hafa kynnst félaginu í gegnum Football Manager og vera "Big Fan". Ég sagði honum að ég væri fyrrum þjálfari og leikmaður og sá varð starstrucked! Ég gaf honum treyju því nú líður mér einsog Stjörnu
Árið er 2020 og leikmaður Skallagríms lét rasísk ummæli falla í garð leikmanns Berserkja í kvöld. Vonandi heldur aganefnd sínu striki og dæmir menn í löng bönn
Þá spyr maður sig aftur hvers vegna starfsfólk í leik og grunnskólum eru ekki á sama stað í bólusetningar röðinni og heilbrigðisstarfsfólk. Okkar mikilvægasta fólk ef halda á samfélaginu gangandi
Ég skora á þá sem væla yfir dómgæslu og skorti á dómurum í yngri flokkum að byrja að dæma fyrir sín félög. Þegar þetta fólk er svo búið að dæma nokkra leiki má það hafa skoðun
Á þjálfara fundi í Víkinni fyrir nokkrum árum var farið yfir hlutverk og stefnu félagsins. Þar var m.a. talað um að við værum uppeldis klúbbur, markmiðið væri að framleiða leikmenn og miðað við iðkendafjölda og stærð hverfis væri ekki raunhæft fyrir okkur að vinna Íslandsmeistara
Krakkar á menntaskólaaldri mega ekki mæta í skólann og mega heldur ekki æfa vegna smithættu. Hvar eiga þau að smitast? Þau eru ein heima allan sólarhringinn. Samt mega yngri krakkar sem fá að mæta í skóla æfa. Eru menntaskólakrakkar tilraunadýr í einhverri rannsókn?
Jarðtengdi mig í dag og fór aftur í píparaumhverfið með því að skella mér á Í-Mat í hádeginu sem er alvöru iðnaðarmanna staður. Hitti þar vertinn sem er fyrrum leikmaður Víkings, Pétur Viðarsson. Alvöru matur hjá alvöru manni. Takk Pétur
Þvílíkur leikur! Fótbolti er svo fallegur. HK sem allir spá falli með uppalinn óreyndan þjálfara og ódýrasta lið landsins vinnur það dýrasta. Takk Ómar
#Berserkirworldwide
Af hverju verða gæðin í Pepsí svona lítil með fjölgun? Miðað við hvað? Aukast gæði liðanna sem komu upp ekki með því að spila á hærra leveli? Ungir leikmenn styrkjast og fá reynslu í leikjum gegn betri leikmönnum á stærra sviði? Munu ekki fleiri fylgjast með deildinni?
Við höfum áður lent í hálfvita sem dæmir hjá okkur í Evrópu og héldum út í 90 mín.
Ákvörðunin verst fyrir dómarann sjálfan sem dæmir aldrei aftur í Evrópu
Henti þrennu í andlitið á ungum í gær (skalli, hægri, vinstri). Baráttu sigur hjá gömlum. Kemst ekki uppúr rúminu núna með stífan nára og brákað rifbein
Á laugardaginn fór Pepsídeildar leikmaðurinn Örvar Eggertsson beint af fótboltaæfingu á Bikarmót í frjálsum þar sem hann stökk 2.01 í hástökki og hlaut gullverðlaun fyrir. Nokkuð gott fyrir mann sem æfir ekki frjálsar. Ekki eins gott fyrir þá sem æfa.
Það voru margir sem misskildu gjörning Blika um daginn og héldu að þeir væru að mótmæla því að KSÍ skildi ekki fresta leiknum. Hið rétta er að Blikar voru að mótmæla iðjuleysi húsvarðarins í Víkinni. En ekki er Óskar að hjálpa honum með að losa lummu á planið
Súkkulaðistykkið Draumur frá Freyju, framleitt í Kópavogi, er 60 krónum dýrari í Bónus á Nýbýlavegi (innan við kílómetra frá framleiðslustað) en í skranversluninni Normal í Örebro, Svíþjóð. Merkileg staðreynd
Í vetur hugsaði ég "Kannski væri ráðlegt fyrir alltof þungan mann með ónýt hné,bak og krónískar tognanir í nára og aftaní lærum að hætta að leika sér í fótbolta með mikið yngri mönnum" Í dag hugsa ég "Ég hætti þegar ég er dauður því það er ekkert skemmtilegra en að spila fótbolt
Ég vil biðja alla stuðningsmenn Manchester United afsökunar á ummælum mínum í Þungavigtinni sumarið 2022. Þar spurðu
@RikkiGje
mig hvor stuðningsmannahópurinn væri veikari United eða Liverpool og ég svaraði United. Ég hafði rangt fyrir mér. Afsakið
Í vinnunni hjá mér hafa allir verið óvinnufærir eftir að ég sagði þeim frá heimaleikjabanni Víkings. Fólk er búið að liggja grenjandi úr hlátri á gólfinu síðan kl 8:30 í morgun. Þessi dómur er ekki bara hlægilegur heldur gerir hann líka lítið úr íslenskum fótbolta.
Ég hef aldrei áður fengið gæsahúð við að sjá Val og KR gera jafntefli🖤❤️
Ég er ekkert eðlilega stoltur af mínu félagi sem í dag tóku þann stóra á "hversdagslegan hátt".
Til hamingju við öll
1) Ég lenti í því sturlaðasta sem ég hef lent í á mínum þjálfaraferli á Norðurálsmótinu áðan. Við vorum að stýra leik á þjálfaralínunni þegar foreldri mótherjanna byrjar að ýta á bakið á mér og segja mér að færa mig því hann sjái ekkert fyrir mér
Boltasækjararnir í Kópavogi hafa tekið til sín gagnrýni stjórnarmanna Víkings eftir síðasta leik. Þeir eru miklu fljótar að skika boltanum í leik. Hrós fyrir það
Það eru nokkrir þarna úti sem gera lítið úr afreki Arsenal 03/04 en það að þetta nánast fullkomna City lið sé ekki nálægt því að fara ósigraðir í gegnum heilt tímabil, hvað þá að ná 49 leikjum, sýnir hversu mikið afrekið er
Hvernig gat dómarinn ekki séð að það var brotið á De Gea strax. Eitt augljósasta brot ársins. Dómarar í Englandi hafa orðið lélegri með tilkomu VAR. Þora ekki að taka ákvarðanir. Treysta á að VAR reddi þeim
Það væri vel þegið ef
@St2Sport
myndu setja
@Pepsimorkin
í Fresið strax morguninn eftir eða endursýna hann strax eftir miðnætti svo maður geti tekið þau á tímaflakkinu morguninn eftir. Myndi auðvelda líf mitt og margra annara mikið
Ég var gestakennari í íþróttafræði HÍ í vikunni og þar vissu nemendur ekki hver Lee Dixon er.
A. Heimur versnandi fer
B. Það þarf að endurskoða kennsluhætti í Háskóla Íslands
Áður en leikur Víkings og Fjölnis í 3.fl kv hófst æfðu stelpurnar í 8.flokki í Víkinni. Á meðan var það mikið óveður aðeins örfáum kílómetrum vestar að það þurfti að fresta fótboltaleik hjá fullorðnum karlmönnum.
Þessi leikur er dæmi um það hve góður þjálfari Arnar Gunnlaugsson er. Kerfið er það solid og allir eru með öll hlutverk á hreinu að það skiptir ekki miklu máli hver spilar hvar. Ungur, óreyndur, þreyttur en vel þjálfaður hópur vinnur þetta sterka KR lið sanngjarnt
Þeir þjálfarar sem eru svona ósáttir við lengingu mótsins og tala það niður trekk í trekk í fjölmiðlum, þurfa þeir ekki bara að fara að breyta til og finna sér skemmtilegri vinnu?
Kári Árnason og Sveindís Jane Jónsdóttir eru Knattspyrnufólk ársins 2021.
Kári Árnason and Sveindís Jane Jónsdóttir have been named Footballer's of the year in Iceland.
#fyririsland
#dottir